Íhaldið heldur velli

Við Framsóknarmenn í Winchesterhreppi urðum fyrir nokkru áfalli í kosningunum í gær. Eftir erfiða talningu, sem tók á annan sólarhring varð niðurstaðan sú að íhaldið hélt velli, naumlega þó. Framsóknar-liberalar unnu tvö af Verkamannaræflunum, sem eiga nú engin sæti í okkar ágæta hreppi. Svo eru einhverjir óháðir, en í öllu falli dugar það ekki til að fella íhaldið. Íhaldið hefur þannig eins sætis meirihluta eins og áður. Það er sama sagan allstaðar hér á Suðurlandinu. Íhaldið vinnur heldur á og heldur velli þar sem þeir höfðu meirihluta. Unnu Portsmouth (sem okkur þykir heldur súrt í broti). En við Frammarar höldum ennþá Southampton.

Framsóknar liberalar töpuðu yfirleitt sætum á Suðurlandinu. Ég er að hugsa um að hætta að vera Framsóknarliberali. Líklega er bara betra að vera krati hérna, eins og á Íslandi. Það góða við stöðu þeirra hér á Suðurlandinu er að hún getur varla vesnað. Verkamannaflokkurinn ræður varla einu einasta kjördæmi. Humm, þarf að ræða þetta við Blair, Brown og hina strákanna.

Þeim veitti hins vegar ekkert af því að láta Sollu kíkja á þá hérna til að kenna þeim femenisma. Þá myndu þeir kannske fá nokkur atkvæði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólmundur Friðriksson

Hvað segirðu Unnar, ertu orðinn frammari? Búinn að kjósa utanskjörstaðar? Þá myndi virkilega muna  um atkvæðið þitt hér uppi á klakanum. Jón Sigurðsson er farinn að koma fram í auglýsingum með óráði - hefur sennilega fengið hastarlega flensu fyrir kosningarnar, einmitt þegar hann þurfti að vera að leika í auglýsingu. A.m.k. heyrði ég hann segja að kjósendur væru bara vitlausir - fannst það ansi nýstárleg aðferð til að rétta úr kútnum. En frammarar allra landa sameinist! Nú ríður á að bjarga gamla græna flokknum og hefja gafflana á loft. Lifi bændabyltingin!!!

Sólmundur Friðriksson, 7.5.2007 kl. 22:03

2 Smámynd: Unnar Rafn Ingvarsson

Tja. Ég verð náttúrulega seint eða aldrei Íslenskur framsóknarmaður, þannig að sr. Jón verður að verða af atkvæði mínu í þetta skiptið. Hitt er svo annað mál að ég er verulegur verndunarsinni á íslenska menningu, og þætti fremur leitt ef þeir þurrkuðust út. Bændalýðurinn á Suður-Englandi skilja þetta náttúrlega ekki og kjósa allir íhaldið. Ætli þetta sé orðið eins á Íslandi?

Unnar Rafn Ingvarsson, 8.5.2007 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Unnar bloggar

Höfundur

Unnar Rafn Ingvarsson
Unnar Rafn Ingvarsson
Unnar Ingvarsson. Sagnfræðingur á Sauðárkróki, nú búsettur í Winchester í Englandi. Þeir sem þurfa að hafa samband er bent á póstfangið unnar.ingvarsson@gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Garðar að verða frægur
  • Burping Ron
  • Butter Cross í High Street
  • Dómkirkjan í Winchester
  • Vetrardagur í Skagafirði

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband